hjúkkan talar
Skólarnir mínir
21.10.2008 13:17:19 / brynja

kanski ég ætti að hlusta á kennarann.

já mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan síðast, en kanski hefur í raun alls ekki svo mikið gerst.
afmælið hennar mömmu er búið og konan orðin 60 ára shit hvað hún er gömul konan, heppin að eiga svona unga dóttir. veislan heppnaðist rosalega vel og var hápunkturinn án ef þegar konan fór að gráta þegar systir hennar og 2 frænkur komu að sunnan. við vorum búin að segja henna að systir hennar kæmist ekki og hún átti engan veginn von á þessum frænkum sínum sem hún ólst upp með.

ég fór svo suður eftir veisluna og byrjaði í verknámi og var því svo bara að ljúka í síðustu viku. 2 vikur fyrir sunnan og 2 vikur fyrir norðan. verknámið var svona mis lærdómsríkt og mis skemmtilegt en sem betur fer lauk því á besta veg á frábærri gjörgæsludeild á FSA.
Nú er maður bara byrjaður í skólanum á fullu og það er mjög þægilegt að komast í þá rútínu.

ekki má nú gleyma að minnast á london ferðina sem var náttúrulega bara geðveikt skemmtileg. london getur bara ekki klikkað og alltaf finnur maður eitthvað nýtt að skoða eða sjá. við fórum t.d. á indverskanstað sem var svo góður að ég er alveg til í að fara þangað aftur. auðvitað gat ég verslað aðeins, ég meina maður fer ekki þangað án þess að versla. ég meira að segja keypti nokkrar samfellur og læti, vitum samt ekki hvort kynið er.

þessa dagana erum við svo að mála og breyta aðeins heima hjá okkur og fer mestur okkar tími, fyrir utan vinnu og skóla, í að mála og vesenast. þetta verður fínt þegar þetta er búið.

jæja nú ætla ég að reyna að hlusta aðeins á kennarann sem er að tala.
kv brynz

» 26 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 08:32:38 / brynja

mikið um að vera

Jæja þá er fullt að gerast þessa dagana.
Verkefnavinnan er komin á fullt hérna í skólanum og fyrstu skil eru á mánudaginn næsta. 
Svo erum við að fara hitta leiðbeinandann í lokaverkefninu á föstudaginn þannig að það sú vinna er að fara að byrja líka. Það er náttúrulega bara spennandi.

Öll fjölskyldan mín er svo að fara að skella sér í bústað um helgina þar sem hún móðir mín verður sextug á laugardaginn. Mikið held ég að þetta verði gaman.

Strax á mánudaginn fer ég svo suður til Höllu þar sem ég ætla að gista í 2 vikur á meðan ég er í verknámi. Ég fer svo í verknámið á þriðjudaginn kl.8 og svo á miðvikudaginn og svo fer ég út á fimmtudaginn fram á sunnudag. 
Svo held ég bara áfram í verknámi eftir helgina og verð alveg fram til 30. september.
Ef að einhver hefur áhuga á að hitta mig þá bara endilega hafið samband, ég verð með símann með mér.

Mikið verður svo gott að komast heim og slaka á og hætta þessu flandri, þó svo að það sé bara gaman  að prófa nýja hluti og alltaf gaman í útlöndum.

jæja nú ætla ég að halda áfram að fylgjast með í skólanum.
bið að heilsa öllum 
bæbæ 

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 16:01:23 / brynja

Ólafsson/dóttir

Góðan og blessaðan daginn!

Jæja nú er skólinn byrjaður á fullu og órtúlega mis skemmtilegir áfangar sem eru á þessari önn. Annars er bara mjög gott að koma sér í rútínu og vakna á morgnana og svona, ekki það að ég sé alveg með það á hreinu hvernig maður fer að því að vakna svona snemma marga daga í röð.
Ég fer í verknám til Reykjavíkur í september í 2 vikur á Barnaspítala Hringsins, ég er alveg gríðarlega spennt fyrir því. Svo kem ég heim og fer í verknám á skurðdeildinni og gjörgæslunni, held reyndar að það verði líka ótrúlega gaman

Um miðjan september förum við til London og ég hlakka svo ótrúlega mikið til, ég elska útlönd og þá sérstaklega London. 

Svo til þess að svara spurningunni hennar Rúnu þá er von á litlu kríli í febrúar þannig að það er nett tilhlökkun í mannskapnum í T9.

Jæja ég bið að heilsa í bili
kv Brynja

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 15:16:34 / brynja

sumarfríið búið

Jæja nú eru sumarfríin að verða búin þannig að það er ekki seinna vænna að fara að skrifa eitthvað hérna inn ef einhver skildi nú enn þá líta hér við.
Það er nú svo sem ekki mikið að frétta eftir sumarið þar sem vinnan hefur tekið mestan tímann á eftir svefninum.
Reyndar skelltum við okkur í brúðkaup sem var haldið rétt hjá Flúðum og það var alveg rosalega gaman. Við byrjuðum á því að fara í Borgarfjörðinn og gista þar eina nótt í Húsafelli, mikið er það flottur staður. Svo var keyrt sem leið lá suður að Syðra-Langholti þar sem veislan fór fram. Það er alltaf svo gaman í útilegum. Sumir voru aðeins hressari en aðrir. Ég sleppti því alveg að fá mér í glas þar sem lítið dýr er búið að hreiðra um sig hjá mér. Ógleði hefur af þeim völdum verið með yfirráðin í mínu lífi síðustu mánuði.
Vegna þess hver þessi litli laumufarþegi hefur verið mér erfiður hef ég ekki haft eins mikla orku og ég hefði viljað í sumar. 
Í ágúst þá eignaðist Hann ,ef þið munið hver hún er, litla stelpu sem er alveg gríðarlega sæt.
Núna næst á döfinni er svo að keyra aftur suður á Flúðir til að fara í sumarbústað og stoppa svo aðeins fyrir sunnan og hitta vini og vandamenn.
Ég ætla að láta þetta gott heita í bili. 
Vonandi skrifa ég eitthvað merkilegt hérna inn fljótlega aftur.
Kv Brynz

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 17:26:16 / brynja

Blogg sumarfrí

já af því að ég hef verið svo dugleg að blogga fyrir sumarið þá held ég að óhætt sé að koma með þá afsökun að ég sé komin í hálfgert blogg sumarfrí.
ég bara einhvern vegin finn mér eitthvað annað að gera heldur en að hanga í tölvunni.

Reyndar þegar maður er í 100% vinnu og á þrískiptum vöktum þá gerir maður ekki mikið annað en að vinna og sofa. því að maður er yfirleitt ekki búin að snúa sér eftir næturvaktir þegar maður er mættur á næstu morgunvakt. Núna er ég reyndar á milli næturvakta þ.e. ég vann í nótt og er að fara að vinna í nótt. Svo er ég komin í helgarfrí. Mikið verður það nú gott. Við ætlum að skella okkur í bústaðinn og reyna að gera eitthvað þar ef að veður leifir.

Annars er allt gott að frétta héðan úr tjarnarlundinum. Við skelltum okkur suður um daginn til að fara í útskrift og það var bara alveg hreint mögnuð ferð. Halla vinkona bauð í pottinn um síðustu helgi og það var náttúrulega æði.
Annars hafa síðust vikur á þessu heimili einkennst af fótbolta og var ég gríðarlega svekkt yfir því að hollendingar skildu ekki ná þessu. Sem betur fer eru tyrkir dottnir út en verst að það voru þjóðverjar sem slóu þá út, ég held að pabbi hafi smitað mig af einhverju þjóðaverjahatri þegar ég var lítil.

jæja þá er komið nóg af þessu sumarbloggi.
ég bið að heilsa ykkur, kanski á ég eftir að blogga oftar í sumar, maður veit aldrei.
Bæjó
kv brynz

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 22:01:13 / brynja

margt og mikið að segja...

... ég bara gleymi því alltaf
það er svo merkilegt með bloggið hérna hjá mér að ég fæ alltaf reglulega gríðarlega góðar hugmyndir um mál sem ég þarf að ræða hérna. hins vegar fæ ég þessar hugmyndir alltaf þegar ég hef ekki tíma til að blogga, þegar ég svo hef tímann þá man ég bara ekki neitt hvað það var sem ég ætlaði að segja hérna.
svo var ég reyndar að spá hvort að maður ætti að fara að tjá sig um einhver þjóðfélagsmál en guð hvað ég nenni því ekki. held að það sé alveg nóg af fólki sem finnst það þurfa að tjá sig um mál líðandi stundar.
af mér er það svo að frétta að prófin eru byrjuð og eru reyndar alveg að verða búin. 3 eru búin og 1 eftir og það verður tekið á þriðjudaginn.
ég er strax byrjuð að plana útilegurnar í sumar og er að hugsa um að byrja sumarið helgina 20. - 22. júní ef veður leifir. ég geri mér grein fyrir að þetta er kanski í það fyrsta en ég meina come on maður á bara aðrahvora helgi frí. ef einhvern langar að skella sér með þá eru allir velkomnir.
í tjarnarlundi 9f ríkir gríðarleg spenna þessa dagana þar sem hver laus stund fer í að spila rommý og er sumir fjölskyldu meðlimir aðeins tapsárari en aðrir. þar af leiðandi verða úrslit ekki kunn gjör hér
jæja nú ætla ég að halda áfram að horfa á boston legal.
sí jú
brynz

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 08:19:11 / brynja

sumarið er komið...

það er ekki seinna vænna að óska ykkur gleðilegs sumars!
sumarið byrjaði náttúrulega voðalega vel en svo hefur eitthvað aðeins ruglast veðrið og núna er bara skíta kluldi. ekki að það hafi mikil áhrif á mig þar sem ég eyði dögunum meira bara inn í aukaherbergi að lesa.
próafin eru alveg að skella á, sem þýðir að þau eru líka alveg að verða búin, ég held að þetta verði mjög fljótt að líða.
verður maður ekki að gera svona to do list fyrir sumarið? Hérna kemur hann allavegana.
to do list sumarið 2008:
  • fara til orlando
  • fara í útilegu í hvalfjörðinn og sjá hæsta foss íslands
  • fara í fjölskyldu útilegum með stelpunum
  • fara í fleiri útilegur
  • labba frá reyn og yfir í garðsárdalinn
  • vinna frekar mikið
  • klára rúmteppið
  • klára lopakjólinn fyrir næsta vetur
  • grilla mikið, fisk og kjúkling aðallega
  • koma mér í form
  • hlaupa úti
  • hafa það gott

jæja þá held ég að það allra mikilvægasta sé komið ef það er eitthvað fleira þá bara bæti ég því við.
maður reynda getur ekki planað allt of mikið þegar maður er í svona gríðarlega mikilli vinnu og er bara í fríi aðrahverja helgi. ég held reyndar að raunin verði sú að maður fara í útilegu nánast hverja helgi sem að ég verð ekki að vinna.
nú ætla ég hins vegar að halda áfram að lesa
sjáumst í sólinni 8)
bæ bæ


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 09:23:17 / brynja

megrunin er farin

það er nú kanski kominn tími á smá blogg hérna. ekki það að ég haldi að einhver sé að lesa þetta.

margt hefur á daga mína drifið síðustu vikur, en stærsti þátturinn var að sjálf sögðu afmælið mitt. jújú ég er orðin 28 ára gömul og ég er ekki frá því að ég fíli það bara alveg ágætlega. nú fer bara hinn helmingurinn að ná þessum aldri líka.

einhvern tíman á þessum tíma þá hætti ég í megrun. ég verð bara að sætt mig við hvernig ég er í vextinum, en ætla hins vegar að fara leggja mig fram við að koma mér í gott form. það að geta hlaupið svona frekar átakalaust í nokkrar mínútur finnst mér miklu mikilvægara en að vera viða mjó. þegar þessi ákvörðun var tekin þá byrjaði ég að mæta aftur í ræktina og reyna að taka á því.
í gær ákváðum við að taka vel á því skötuhjúin og skelltum okkur út að hlaupa. óli fékk mig með sér með því að við ætluðum bara að byrja rólega og fara skógarlundarhringinn. þegar við komum svo niður á þingvallastræti vildi óli halda áfram og ég samþykkti. hélt að við værum bara að fara niður á þrunnarstræti. aldeilis ekki við fórum niður þingvallastr. niður kirkjutröppur, inn í innbæ og þar upp naustaveginn og þaðan svo heim. þetta var náttúrulega alveg magnað og vonandi að það verði framhald af þessu.
ekki skemmdi fyrir að það var fullt af fólki sem að keyrði framhjá okkur áður en það sást á mér að ég var að deyja.

annars er maður bara að byrja á fullu í prófundirbúningi. næstu helgi er það svo fermingarveisla og svo ætlum við að hafa hrygg í matinn. raggi er með einhverja rosa uppskrift.

ég ætla að skell mér núna að hlusta á hann sigmund geðlækni, manni veitir ekkert af því.
sí jú leiter
kv brynz

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 09:13:47 / brynja

ef ekki núna hvenær þá

veit svo sem ekki alveg hvað það er sem ég á að segja, mig bara langaði til að segja eitthvað.

síðustu dagar hjá mér hafa einkennst af einhverjum skóla, vinnu og jú svo má ekki gleyma hokkýinu.

4. deildin á HM kvenna var í fullum gangi í síðustu viku og OMG hvað ég var spennt hérna heima. stelpurnar frá klakanum að sjálfsögðu komu öllum á óvart og sennilega sjálfum sér lang mest og unnu alla leikina sína. TIL HAMINGJU STELPUR:!::!::!:
úrslitakeppnin hjá meistar flokki karla hófst líka í síðustu viku og var hún svona upp og ofan. mál málanna þar var að SR tefldu fram ólöglegum leikmanni og voru þeim því dæmdur ósigur í fyrsta leiknum þannig að SA eru orðnir íslandsmeistarar bæði í meistaraflokki kvenna og karla. stelpurnar löngu búnar að vinna þá leiki sem þarf til að vera íslandsmeistari.

ég hef verið dugleg að sitja við handavinnuna mína undanfarið og ekki laust vioð að nú þurfi ég að fara að skella myndavélinni á smettið og taka mynd af afrakstri vetrarins.

eitthvað af afmælum voru í gær þ.e. bæði í minni fjölskyldu og svo óla fjölskyldu. hæst ber þar að nefna hana brjóstagóðu vigdísi ara. til hamingju öll með daginn í gær:!:

mér var boðið í leikhús á sunnudaginn og ég fór að sjá fló á skinni. SHIT ég get bara ekki sagt annað. ég kom algjörlega örmagna úr leikhúsinu. það var maður sem býr þar sem ég vinn sem bauð mér og við skemmtum okkur konunglega.

vinnulega séð er ég svo að skipta um vinnu. ég er ekki alveg hætt í hafnarstræti en ég er samt byrjuð í nýrri vinnu.
ég er nefninlega byrjuð á barnadeildinni á sjúkrahúsi akureyrar.
fyrsti dagurinn var á mánudag og næsti er í dag. mér finnst þetta æði.

jæja nú ætla ég að fara að halda áfram að læra.
sí jú
kv brynjz

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 13:56:59 / brynja

páskar vs skóli

nú eru páskarnir búnir og maður er búinn að hafa það allt of gott.
ég startaði páskafríinu á miðvikudagskvöldið þegar ég var búin að vinna. ég fór heim til ellu og ragga og smakkaði aðeins á rauðvíninu þeirra og við spiluðum.
á fimmtudagsmorguninn var ég svo vakin og beðin um að vinna frá 9 - 16 og ég gat ekki sagt nei þannig að ég dreif mig í vinnuna með dúndrandi hausverk og læti. um kvöldið komu svo mamma og pabbi í mat og við spiluðum eitthvað frameftir kvöldi.
á föstudaginn átti ég frí og það var ekkert sem haggaði því. við skelltum okkur í bíltúr inn á draflastaði og kíktum aðeins á hestana, ég á náttúrulega æðislegasta hest í heimi. mamma, amma, ella, einar, fjóla hreindís, steinunn edda og jökull helgi komu með okkur. hestarnir fengu brauð og klapp og klór á meðan að systurnar skelltu sér aðeins á bak. það er náttúrulega hefð fyrir því að hrönn hafi partý á föstudaginn langa og á því varð ekki undantekning þetta árið. ég og óli fórum í mat til ellu og ragga og ella kom svo með okkur í partý til hrannar. þar var mikið drukkið og mikið gaman.
laugardagurinn var ekki mjög góður dagur þar sem hann byrjaði með því að ég faðmaði tojarann. engu að síður skelltum við okkur í bústaðinn rétt um hádegi. fyrir austan var alveg æðislegt veður. þar hafði maður það bara gott og enduðum frekar erfiðan dag á því að skella okkur í pottinn.
páskadagur rann upp bjartur og fagur og mikið eru nú páskaeggin góð. eftir að hafa horft á eitt stykki fótboltaleik ákváðum ég og óli að skella okkur í bíltúr og skoða aldeyarfoss. bíltúrinn endaði svo í 6 km göngu og þar með var litlum bita af páskaegginu brennt. nú þarf ég bara að hafa áhyggjur af restinni. páskalambið var svo grillað og vel borðað um kvöldið. svo voru spilin tekin fram, en engin var pottferðin þar sem frostið var svo mikið að dælan sprakk.
í gær komum við svo heim og við tók skólinn og allt sem honum fylgir. ég skelli mér í lærdóminn í smá stund og svo tók við áframhaldandi letilíf með john mcclane í aðalhlutverki.
í morgun vaknaði maður svo og fór upp í skóla að læra, kláraði eitt verkefni og held áfram með næsta.
nú bíð ég bara eftir að klukkan verði 16 svo að ég geti heyrt í afmælisbarni dagsins en það er hún kata mín. hún er orðin 28 ára. hún dettur inn á netið kl.16 og þá get ég hringt í hana á skype.
meira er ekki að frétta að sinni
kv brynz

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 09:37:56 / brynja

allt í þágu vísindanna/einkunanna

Það er náttúrulega allt gott að frétta hjá mér, lífið heldur sinn vana gang.

Skólinn er á fullu en samt kemur maður sér ekki í að gera neitt.

 

Því miður æxlaðist það þannig að ég er að vinna frekar meira núna heldur en ég ætlaði mér en það kemru ekki til af góðu þannig að maður gerir allt sem maður getur.

Reyndar græddi ég leikhúsferð á því að vera að vinna, Maggi ætlar að bjóða mér í leikhús að sjá Fló á skinni. Palla vorkennir bara fólkinu sem verður með okkur því að hann Maggi hlær ekkert lægra en ég. Ég er strax farin að hlakka til.

 

Ég hef ákveðið að reyna að virkilega að vera kennarasleikja og er búin að bjóða mig framm í að vera tilraunadýr hjá IT vini mínum. Á morgun mun ég lifa eðlilega þangað til kl.19 þá mun ég sötra um það bil 2 lítra af vatni á hálftíma. Klukkutíma seinna mun ég svo pissa í dós og fara svo upp á FSA í blóðprufu. Eftir þetta mun ég svo ekki fá vott né þurt til morguns, en þá mun ég skella mér á settið og pissa aftur í dollu og fara svo í blóðprufu upp á FSA.

Það er nefinlega tími á laugardagsmorguninn. Hvað gerir maður ekki til þess að komast í gegnum þennan áfanga.

Kanski ætti ég samt að taka þennan áfanga aftur og þá get ég tekið þátt í sykurþolsprófinu og þá er ég búin með pakkann.

 

Ég held að ég muni samt alveg leifa líkamanum að ná í allt sem að hann hugsanlega missti á laugardaginn þar sem ég er viss um það að ég þarf ekki að svelta í bústaðnum. Það er allavegana búið að benda mér á að gleyma ekki að koma við í hagkaup á leiðinni út fjörðinn.

 

Ég verð að misnota aðstöðu mína aðeins hérna því mig bráðvantar aukakennslu í lífeðlisfræði. Ef þig þekkið einhvern eða eruð einhver sem að hugsanlega getur hjálpað mér þá vantar mig hjálp.

 

Ég ætla hins vegar núna að halda áfram að hlusta á IT

Sí jú leiter

Kv Brynz


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 08:55:08 / brynja

hvað er að gerast

Skólinn er náttúrulega alveg byrjaður á fullu og allt sem því fylgir.
Brjálaðislega mikið að gera þ.e. endalaust af verkefnum og svona. Sem betur fer gengur bara ágætlega að vinna þau.

Aðal ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er samt að ég sit í tíma há uppáhalds kennaranum mínum og horfi beint aftan á iðjuþjálfa nema og maðurinn er með derhúfu, ok og allt í lagi með það, en hann snýr skiggninu aftur á bak. Hvað er málið, ég meina kanski á litlum krakka getur þetta verið krúttlegt en á fullorðnum manni þá bara er þetta svo langt í frá að vera töff. Ég held að hann sé eitthvað aðeins að misskilja málið. Svo er þetta ótrúlega ljót og upplituð húfa.

Ég, Rannveig, Heiðdís, Eydís og Arna litla ætlum að skella okkur í sumarbústað um næstu helgi. Stefnan er tekin á mikið át, spil og jafnvel singstar. Ég þarf reyndar að fara í skólann á laugardaginn en ég verð búin eitthvað um 2 leitið kanski aðeins rúmlega. Uppáhalds kennarinn er með verklegan tíma í lífeðlisfræði.
Ég er hins vegar að reyna að vera bjartsýn og jákvæð út í lífið og allt sem því fylgir þannig að ég er bara nokkuð sátt við þetta og maður vonandi lærir bara heilan helling á þessu. 

Ég veit svo ekki hvað verður gert um páskana en aðal áhuginn er að skella sér í bústaðinn með Rögnu og Grími.
Jafn vel að fá sér bíltúr og skoða Aldeyarfoss.  

Ég ætla að fara að einbeita mér að uppáhalds.

Heyri í ykkur seinna.

Kv Brynz


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 18:07:00 / brynja

nýtt er mér erfitt

Já Sæll
það er nú ekkert smá mál að ætla að gera eitthvað hérna á þessari síðu. allt nýtt og ég skil ekki neitt.
það er búið að taka mig góðan hálftíma að reyna að finna út hvernig ég á að bæta inn myndum hérna þ.e. að skrá bara tengil.

ég hef ákveðið að tileinka mér gríðarlega bjartsýni á lífið og tilveruna í framtíðinn, ég meyna afhverju ætti maður ekki að gera það.

skólinn er á fullu hvert verknámið rekur annað og nóg að gera í verkefna vinnu. próftaflan mín er alveg afleit en það þýðir bara að maður verður að vera duglegur að læra fram að prófum og skipuleggja sig vel.

ég hef verið dugleg að hreyfa mig síðustu daga og mataræðið verið alveg ágætt. maður verður víst að reyna að passa í eitthvað þarna út í orlando.
hreyfingin segir til sín í ýmiskonar strengjum, en það tilheyrir bara.
kirkjutröppurnar hafa fengið að finna fyrir þunga mínum og ég get sko sagt ykkur það að þar eru þung skref á ferð ég tala nú ekki um í síðustu umferðinni upp.

held samt að ég láti þetta gott heyta í bili. endilega skoðið þið myndirnar sem að ég var að setja inn á netið
vonandi sé ég mér fært að setja eitthvað fleira inn bráðum
kv brynz

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 08:43:48 / brynja

orlando og london

ég er að sjálfsögðu löngu komin heim af skaganum og kom bara hæst ánægð þaðan. þegar ég kom heim þá slappaði ég af um helgina og byrjaði svo strax í verknámi á fæðingadeildinni á mánudeginum. ég hef nú ekki mikið um þetta að segja þar sem ég má nú lítið tjá mig um hvað gerðist í verknámi.

annars hefur nú bara voðalega lítið gerst hjá mér lífið gengur sinn vana gang. helst er nú samt það að frétta að ég er á leiðinni til orlando í vor með óla og m&p. ég er náttúrulega strax farin að hlakka til. einnig er fyrir huguð ferð til london í haust, sú borg er náttúrulega alveg mögnuð.

ég er búin að fá vinnu í sumar og í sumar verð ég stödd á FSA á barnadeildinni. greyið heiðdís losnar aldrei við mig.

ég fór til tannlæknis um daginn og tel að ég sé bara algjör hetja fyrir það.:haha: ég brófaði nýja tannlækni og ég get sko alveg mælt með honum garðari. ég er alveg búin að ganga frá því að ég á að mæta aftur eftir ár. vonandi að ég gugni nú ekki á því. ég er að sjálfsögðu búin að vera dugleg að bursta þannig að ég var ekki með neina skemmd, hins vegar komst ég að því að barnatönnin mín er eitthvað að gefa sig. þarf nú að láta laga það, ég þarf nú ekki að borga það að fullu þar sem að þetta er fæðinga galli.

helstu umtals efni þessa dagana eru að sjálfsögðu borgarstjórnin og svo júróvision.
ég nenni að tjá mig um hvorugt.
er alveg komin með ógeð af borgarstjórn reykjavíkur og einna helst þá honum vilhjálmi, ekki það að á meðan að hann er undir smá sjá þá fær núverandi borgarstjóri smá frið.
ég varð fyrir vonbrigðum með júró því ég vildi að gilz færi fyrir okkar hönd. er einhvern veginn alveg komin með nóg af regínu og friðriki en kanski fær maður smá frið frá þeim á næstu árum.

rosa megrun fór í gang í síðustu viku í tjarnarlundinum. það var nú bara annað okkar sem stóð við sitt plan og það var ekki kvk.

konudagurinn var alveg æðislegur fékk bakaríisbrauð í morgunmat og rosa steik í kvöldmat. einnig komu við sögu blóm og dvd mynd.

ég held að það sé komin tími til að hætta í bili og reyna þá frekar að gera þetta oftar og styttra í einu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 10:54:29 / brynja

kveðja frá skaganum

held að það sé nú kominn tími á fréttir af mér.

ég er stödd á akranesi þessa dagana að reyna að gera lífið betra hjá nokkrum hræðum héðan af vesturlandinu. lyfjadeildin hérna er bara mjög notarleg og fólkið mjög svo alminnilegt við mig. ég er búin að fá nokkur námstækifæri og fá að fylgjast með rafvendingu, magaspeglun og svo ristilspeglun.

það fer eitthvað lítið fyrir hreyfingu hjá mér en mataræðið er alveg mjög gott.

heklið gengur vel og eitt barna teppið er búið. nú vantar bara efni í stóra teppið þannig að ég geti haldið áfram með það. ég er reyndar að fara í handavinnubúð hérna á eftir þannig að það er aldrei að vita nema ég finni garnið sem að ég er að leita að hérna á skaganum.

ég ætla nú að fara norður um helgina og vera fram á mánudagsmorgun þar sem ég hef bara ekkert að gera hérna fyrir sunnan. dagskráin er að fyllast en ennþá eru nokkur pláss laus.

ég er byrjuð aftur á aloaveradjúsnum sem ég var á til margra ára og vonast nú til þess að hann fari að létta mér lífið aðeins. ég er reyndar ekki frá því að hann sé byrjaður að virka. ég allavegana vakna ekki upp á nóttunni og klóra mig til blóðs.

jæja ég ætla að drífa mig í búðina hún heitir sko ævintýrakistan ég er mjög spennt að fara þangað.

bið að heils öllum 

kv brynz 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 35313